Eftirlits-, greiningar- og tilkynningarverkfæri forritaskráa
EventLog Analyzer er ítarlegt eftirlits- og tilkynningarverkfæri forritaskráa sem safnar saman, greinir og tengir saman gögn forritaskráa og veitir aðgerðarhæfa innsýn með fyrirfram skilgreindum skýrslum. Stjórnendur og starfsmenn öryggismála geta notað þessar skýrslur til að greina óvenjulega athafnasemi notenda, leita úrræða þegar forrit bila og greina öryggistengdar ógnir.
Lausnin hefur eftirlit með forritum vefþjóna, svo sem IIS og Apache, gagnagrunnum svo sem MS SQL og Oracle, DHCP forritum og fleiri. Þess að auki er forritið búið sérsniðnum skráaþáttara og getur þáttað og greint öll sérsniðin eða kerfisbundin gögn forritaskráa. Tilkynningarborð kerfisins í rauntíma veitir viðvaranir í rauntíma um leið og óvenjuleg atvik eiga sér stað í forritinu og hjálpar til við að leysa úr öryggisárásum á forritið. EventLog Analyzer er einnig búið öflugri samsvörunarvél til að greina leiðir öryggisárása í nettengdum tækjum, þjónum og forritum.
Greiningarskýrslur frá skrám IIS W3C vefþjóns

EventLog Analyzer framkvæmir skilvirka greiningu á forritaskrám IIS vefþjóns, veitir fyrirfram skilgreindar skýrslur sem gefa upplýsingar um HTTP-villur sem koma upp á vefþjóninum, öryggisárásir, beiðnir skaðlegra vefslóða og margt fleira.
Þetta greininar- og tilkynningarverkfæri forritaskráa veitir einnig viðvaranir í rauntíma fyrir SQL-sáningarárásir, DDoS árásir og forskriftarárásir á milli vefsvæða sem eru ætlaðar IIS-vefþjónum.
Greiningarskýrslur frá skrám IIS W3C FTP-þjóns

EventLog Analyzer safnar saman, hefur eftirlit með og rekur forritaskrár IIS FTP-þjóns. Forritið veitir ítarlegar skýrslur um notandaaðgang að IIS FTP-þjónum, upphleðslu skráa, niðurhali, flutningsupplýsingum skráa og fleira. Þessi greining á forritaskrám IIS FTP-þjóns og tilkynningaverkfæri er einnig búið fyrirfram tilbúnu viðvörunarborði og sendir rauntímatilkynningar fyrir niðurhal sem tókst ekki og mikilvægan skráaflutning.
Greiningarskýrslur frá MS SQL-skrám

EventLog Analyzer tryggir að MSSQL gagnagrunnurinn sé öruggur með ítarlegum, forskilgreindum skýrslum og viðvörunarstillingum. Þessi lausn gerir lýsandi, grafískar skýrslur og veitir þannig djúpa innsýn í hvert alvarlegt tilfelli sem kemur upp í gagnagrunninum, þar á meðal athafnasemi í þjóni gagnagrunnsins. Viðvörunarstillingarnar tryggja að þér sé gert kunnugt um tilfelli sem gætu stofnað öryggi gagnagrunnsins í hættu, svo sem misnotkun á forréttindum.
Skýrslur Apache vefþjóns

Skýrslur um skrá Apache vefþjóns veita þér tæmandi innsýn í meðhöndlun beiðna frá viðskiptavinum til vefþjónsins. Ítarlegar skýrslur fyrir beiðnir sem unnið er úr á réttan hátt, beiðnir með villum viðskiptavina, beiðnir með þjónsvillum og beiðnir sem eru sendar áfram. Skýrslurnar veita upplýsingar um viðskiptavini, svo sem IP-fang, stöðukóða beiðninnar sem unnið var úr, tilvísunaraðila, eftirlitsforrit notandans og fjölda tilfella.
Greiningarskýrslur frá skrám Oracle endurskoðunar í rauntíma

EventLog analyzer hjálpar til við að einfalda söfnun, stjórnun, rakningu og myndun skýrslna með aðstoð rauntímaskrám Oracle. Þessar nýtilbúnu skýrslur þarfnast engrar viðbótaruppsetningar og þær gefa lýsandi grafíska skilgreiningu á mikilvægum tölfræðigögnum skránna. Þetta hjálpar til við að spyrna við árásum á borð við SQL-sáningu og DoS
Skýrslur prentþjóns

EventLog Analyzer einfaldar Skráastjórnun prentþjóns og eykur öryggi hans með því að gera honum kleift að rekja og fylgjast með öllum skjölum sem eru prentuð með prentaranum þínum. Þú færð einnig tækifæri til að fylgjast með notendum og notkunartíðni. Þetta gerir þér kleift að búa til skýrslur um mest prentaða skjalið eftir notendum og virkni prentarans.
Greiningarskýrslur frá DHCP Windows-skrám

EventLog Analyzer hefur eftirlit með Windows DHCP þjónum um leið og þeir eru teknir í umferð. Fyrirfram skilgreindar skýrslur eru búnar til um leið og DHCP-þjóni er bætt við EventLog Analyzer, og minnkar umfang eftirlitsins í skráamergðinni. Þetta aðstoðar einnig við að gera skýrslur sem byggjast á helstu viðskiptavinunum og villutíðni.
Greiningarskýrslur frá DHCP Linux-skrám

Skýrslur frá DHCP Linux-skrám frá EventLog Analyzer gerir ítarlegar, innbyggðar skýrslur, svo sem vinsælustu MAC-föngin, vinsælasta gáttin og neikvæðar viðurkenningar til að rekja og fylgjast með skrám sem Linux DHCP býr til. Stjórnendur geta haft auga með breytingum með því að leita í einfaldar skýrslur yfir öll atvik sem DHCP-þjónninn bjó til.
Tengd myndbönd
Aðrir eiginleikar
Stjórnun kerfisskráa
Safnaðu saman og greindu kerfisgögn frá beinum, rofum, eldveggjum, IDS/IPS, Linux/Unix þjónum og fleiri. Fáðu ítarlegar skýrslur um hvert öryggisatvik. Fáðu rauntímaviðvaranir um óvenjulega athafnasemi og brot.
Eftirlit með Windows atvikaskrám
Þú getur greint gögn atvikaskráa til að finna öryggisatvik, svo sem breytingar á skrám/möppum, breytingar á stýriskrám og fleira. Athugaðu DDoS, Flood, Syn og Spoof árásir á ítarlegan hátt með fyrirfram skilgreindum skýrslum.
Stjórnun á samræmi upplýsingatækni
Vertu í samræmi við gildandi kröfur reglubundinna umboða, PCI DSS, FISMA, HIPAA og fleira með fyrirfram skilgreindum skýrslum og viðvörunum. Þú getur sérsniðið skýrslur sem eru þegar til eða búið til nýjar skýrslur til að uppfylla öryggiskröfur fyrirtækisins.
Eftirlit með Active Directory-skrám
Þú getur haft auga með öllum tegundum skráagagna frá Active Directory-kerfinu. Finndu bilanaatvik um leið og þau gerast og búðu til sérsniðnar skýrslur til að hafa auga með sérstökum atvikum Active Directory sem þú hefur áhuga á.
Eftirlit með notendum með heimildir
Hafðu eftirlit með athafnasemi notenda til að uppfylla PUMA kröfur. Fáðu nýjustu skýrslurnar um mikilvæga athafnasemi, svo sem innskráningarvillur, ástæðu innskráningarvillunnar og fleira.
Stjórnun prentþjóns
Hafðu eftirlit með prentþjóni með ítarlegum skýrslum um þau skjöl sem voru prentuð, tilraunum til að prenta skjöl án viðeigandi leyfa, prentunartilraunir sem mistókust og ástæður þeirra og fleira.
Vantar þig eiginleika? Láttu okkur vita
Ef þig langar að fá viðbótareiginleika í EventLog Analyzer þætti okkur vænt um að vita af því. Smelltu hér til að halda áfram
Keep calm and prepare for GDPR.
Get our 'Security admin's survival
guide to the GDPR.'